G-Doc

Sunday, July 09, 2006

ættleiðing, sæðisbankar eða one night stand?

Ég var í saumaklúbbi með nokkrum af barnæskuvinkonum mínum. Við ræddum barneignir og ég velti fyrir mér eftirfarandi sem ég vil gjarnan fá komment á
Núna tel ég að ég yrði ágætis móðir, ef mig langar í barn og verð áfram piparjónka hver er þá besti möguleikinn þegar tillit er tekið til mín, barnsins og tilvonandi föður?
-ég fæ líklega ekki að ættleiða því pör ganga fyrir
- ég get farið í sæðisbanka en þá á barnið engan pabba
-ég get fundið einhvern gaur og sofið hjá honum og orðið ólétt (en ég var á pillunni....) og þá að sjálfsögðu vandað valið og passað að þetta sé almennilegur náungi. Illa gert gagnvart manninum en barnið á þá föður
- síðasti möguleikinn er að semja við einhvern karlkynsvin sem á ekki börn en vill þau, td samkynheigðan vin.

Hvað finnst ykkur?

4 Comments:

  • At 4:56 PM, Blogger Elín said…

    Ættleiða eða fara í sæðisbanka, síðasti kosturinn er bara rugl...

    :)

     
  • At 4:57 PM, Blogger Elín said…

    Nei sorrý næst síðasti kosturinn er rugl... síðasti gæti gengið ef þetta væri einhver sem þú þekktir MJÖG vel og treystir 100%

     
  • At 9:52 AM, Blogger Brynja said…

    mér finnst síðasti möguleikinn sá besti - númer 3 er rugl!
    En með fyrstu 2 þyrftirðu að vera ein að basla í öllu...;)

     
  • At 3:43 AM, Blogger Kolbrun said…

    Fáðu þér bara kærasta!!!

     

Post a Comment

<< Home